UM FÉLAGIÐSJÚKDÓMARFRÆÐSLATENGLARNÝSKRÁNING
|Um félagið|Stjórn félagsins|Lög félagsins|
Um félagið

Samtökin Barnageð, félag foreldra og áhugafólks um geðraskanir barna og unglinga, var stofnað þann 24. mars 1999. Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna barna og unglinga með geðraskanir og aðstandenda þeirra á öllum sviðum, að stuðla að fræðslu og forvörnum meðal félagsmanna og almennings og að veita félagslegan stuðning til barna og unglinga með geðraskanir, sem og fjölskyldumeðlimum þeirra. Allir sem þess óska geta gerst meðlimir í Barnageði, hvort sem um er að ræða einstaklinga sem hafa persónulega reynslu af geðheilbrigðisvandamálum eða einstaklinga sem hafa áhuga að tryggja góða framgöngu þessara mála á Íslandi.

Núverandi stjórn félagsins tók við á aðalfundi 26. maí 2003.

Hægt er að fá frekari upplýsingar um Barnageð með því að hafa samband við félagið símleiðis í síma 695-5200 eða með því að senda tölvupóst á barnaged@barnaged.is.

FRÆÐSLA